Hjallavegur 3
Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - Til sölu er Hjallavegur 3 Flateyri.
Fjögurra herbergja íbúð á efri hæð í fjölbýli ásamt bílskúr.
Sér inngangur, flísalögð forstofa með hita í gólfi. Rúmgóður stigagangur upp á efri hæð, teppi á stiga, skápur í stigagangi.
Komið inn í íbúð, þar er parketlagður gangur.
Eldhús uppgert í kringum 2001, góð innrétting, helluborð, vifta og ofn, parket á gólfi.
Stofa einnig með parketi, útgengt á svalir.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturtuklefi, hvít innrétting, hiti í gólfi.
Inn af baði er þvottaherbergi með hillum.
Hjónaherbergi með dúk á gólfi, skápur.
Annað svefnherbergi með dúk á gólfi, skápur getur fylgt.
Minna herbergi við enda gangs, hefur nýst sem vinnu/hobbýherbergi.
Vatnslagnir endurnýjaðar í kringum 2006.
Nýlegir rafmagnsofnar til kyndingar.
Bílskúr er 46,8 m² að stærð. Bílskúrshurð úr timbri. Afstúkuð geymsla og hillur.
Kostnaður kaupanda sem greiðist við kaupsamning.
1. Stimpilgjald af kaupsamningi/afsali - 0.8% af heildarfasteignamati (0.4% við fyrstu kaup) - 1,6% fyrir lögaðila.
2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 0% af höfuðstól skuldabréfs.
3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 2.000 skjalið.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5%-1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.