Fitjateigur 4, 410 Hnífsdalur
28.000.000 Kr.
Sumarhús
5 herb.
195 m2
28.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1978
Brunabótamat
97.850.000
Fasteignamat
8.970.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is  - Til sölu - Fitjateigur 4 Hnífsdal - Stórt og glæsilegt sumarhús í Hnífsdal. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, stór stofa, borðstofa og setustofa, eldhús, baðherbergi, gesta salerni, þvottahús og 44 m² stór bílskúr. Fallegur garður með sólpalli og heitum potti. Allt innbú fylgir með eigninni að undanskyldum persónulegum munum eigenda.  Eignin er mjög hagkvæm í rekstri og getur boðið upp á mikla tekjumöguleika í útleigu til ferðamanna. 

Grunnlýsing:
Sumarhús - einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr.
Forstofa með flísum á gólfi og stórum fataskáp.
Eitt svefnherbergi inn af forstofu með harðparketi á gólfi. Einnig er lítið gesta salerni inn af forstofu.
Mjög rúmgóð borðstofa, stofa og setustofa með nýlegu harðparketi, falleg og vönduð kamína/arinn frá Barbas. Útgengt á góðan og skjólsælan sólpall með heitum potti.
Eldhús með hvítri innréttingu og flísum á gólfi, helluborð, ofn , uppþvottavél og ísskápur.
Þvottahús inn af eldhúsi með lítilli innréttingu, þvottavél og þurrkara.
Baðherbergi með sturtuklefa, hvítur vaskaskápur, geymsla inn af baði.
Svefnálma með harðparketi, þrjú svefnherbergi. Hjónaherbergi með stórum fataskáp og tvö önnur svefnherbergi, parket á gólfum.
Bílskúr er 44 m² að stærð, steyptur og með flötu þaki, bílskúrshurðaopnari.
Stór gróinn garður og góður sólpallur með heitum potti.
Rúmgott bílaplan. 

Nýleg varmadæla fyrir kyndingu og heitt neysluvatn. 

Kvöð um dvalartíma er á eigninni - búseta aðeins heimil á tímabilinu 1. maí til 31. október ár hvert. 

Annað:
Bílskúr og bílskúrsþak þarfnast viðhalds að utan.
Eignin afhendist fullbúin til notkunar með öllu innbúi, húsgögnum, garðhúsgögnum, raftækjum, nýlegum rúmum, borðbúnaði, sængum, koddum og sængurfatnaði fyrir a.m.k  8 manns.

 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.