Hafnarstræti 9, 425 Flateyri
41.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Tvíbýli
7 herb.
175 m2
41.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1885
Brunabótamat
71.750.000
Fasteignamat
9.951.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is- kynnir til sölu - Hafnarstræti 9 Flateyri - Einstaklega sjarmerandi timburhús á tveimur hæðum með sér íbúð á neðri hæð og sér íbúð á efri hæð. 
Á neðri hæð er 97 þriggja herbergja íbúð, hæðin er skráð sem verslunarhúsnæði í fasteignaskrá. Á efri hæð er  78,8 m² fjögurra herbergja íbúð með sérinngangi bakatil. 

Jarðhæð:

Íbúð á neðri hæð, sér inngangur að framanverðu. 
Forstofa, svefnherbergi, baðherbergi með sturtuklefa, stofa og eldhús í opnu rými, gluggalaust rými bakatil og í viðbyggingu að aftanverðu hefur verið nýtt sem svefnrými,  þvottaherbergi og geymsla.
Að innanverðu er íbúðin nýlega innréttuð, harðparket á gólfum, nýlegar innréttingar og lagnir. 
Vatnsofnar til kyndingar á neðri hæð.

Efri hæð:
Íbúð á efri hæð,  tréstigi upp á 2.hæð að aftanverðu og sér inngangur þar. 
Forstofa, baðherbergi með þvottaaðstöðu,  opið eldhús og borðstofa, þrjú ágæt svefnherbergi. 
Timburfjalir á gólfi í eldhúsi/stofu og stærsta herberginu, plastparket á minni herbergjum. 
Rafmagnsofnar til kyndingar á efri hæð. Ágætur sólpallur við inngang íbúðar.

Að utanverðu er eignin í ágætu standi, nýlegt þak er á húsinu og gluggar nýlegir. 
Ágætur afgirtur og grasi vaxinn garður fyrir aftan og við hlið hússins.

Kjartanshús er næstelsta íbúðarhúsið á Flateyri, var byggt 1884, kennt við Kjartan Rósinkrantsson skipstjóra. 
Húsið hefur gegnt mörgum hlutverkum í gegnum tíðina, bæði sem verslun og síðar meir sem bakarí.

 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.