Hjallavegur 20, 425 Flateyri
27.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
90 m2
27.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1981
Brunabótamat
40.750.000
Fasteignamat
16.850.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is - Til sölu er Hjallavegur 20 Flateyri - Töluvert endurnýjuð og falleg þriggja herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýli, frábært útsýni yfir Önundarfjörðinn. Eignin samanstendur af góðum stigagangi, gangur, þvottahús og geymsla, tvö svefnherbergi, baðherbergi og eldhús og stofa í opnu rými með góðum svölum. Eldhúsinnrétting og tæki endurnýjuð, ný gólfefni og innihurðir. Eignin var nýlega heilmáluð að innanverðu.

Nánari lýsing
Sérinngangur á jarðhæð og rúmgóður teppalagður stigagangur.
Komið inn í gang með nýju harðparketi á gólfi og fataskáp.
Rúmgott þvottahús/geymsla með nýlegum skápum og hillum.
Hjónaherbergi með nýju harðparketi á gólfi og stórum fataskáp.
Annað svefnherbergi einnig með nýju harðparketi og fataskáp.
Eldhús og stofa í opnu og björtu rými með mikilli lofthæð, nýtt harðparket á gólfi. Úr stofu er útgengt út á svalir með frábæru útsýni út á Önundarfjörðinn.
Eldhús með nýrri Ikea innréttingu og skápum, nýtt spanhelluborð, ofn og uppþvottavél.
Baðherbergi með dúk á gólfi, baðkar með sturtu.

 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.