Holtagata 13, 420 Súðavík
46.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
167 m2
46.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1997
Brunabótamat
66.800.000
Fasteignamat
30.250.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is- kynnir til sölu - Holtagata 13 Súðavík - Fallegt einbýli á einni hæð ásamt bílskúr, húsið sjálft er 129 m² og bílskúr 38,2 m². Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, forstofa, stofa og borðstofa, eldhús, baðherbergi og gestasalerni, rúmgott þvottahús og bílskúr, fallegur garður og stór sólpallur, nýr 12 m² geymsluskúr í garði. Í Súðavík er gott og fallegt umhverfi  til útivistar og frábært útsýni út á djúpið og til fjalla.

Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með stórum fataskáp og skóskáp, flísar á gólfi og hiti í gólfi.
Gangur inn að stofu með flísum á gólfi, lítið salerni með flísum á gólfi og hiti í gólfi þar.
Mjög rúmgóð og falleg stofa og borðstofa með flísum á gólfi, útgangur út á stóran sólpall úr stofu.
Eldhús með fallegri innréttingu, ofn og örbylgjuofn, nýtt spanhelluborð og vifta á eyju, uppþvottavél fylgir, flísar á gólfi.
Eitt svefnherbergi er við hlið eldhúss, flísar á gólfi.
Svefnherbergisgangur með steyptu máluðu gólfi.
Hjónaherbergi með plastparketi á gólfi og stórum og góðum fataskáp.
Tvö minni herbergi með án gólfefna. 
Baðherbergi með baðkari og sturtuklefa, innrétting, flísar á gólfi og veggjum, hiti í gólfi.

Þvottahús inn af forstofu, stór innrétting fataskápur, hiti í gólfi, útgengt út á sólpall norðanmegin í húsinu.
Innangengt í 38 m² bílskúr úr þvottahúsi, steypt gólf, hurð með rafstýrðum opnara.
Geymsluloft yfir bílskúr og þvottahúsi.
Gróinn garður afgirtur að hluta, stór sólpallur og nýr 12 m² geymsluskúr. Malarborið bílastæði.
Allar innréttingar og skápar frá SBS innréttingum, settar upp 2006 en þá voru gólfefni einnig endurnýjuð. Gluggar eru álgluggar frá Kjarnagluggum.
Ath. að heitur pottur sem er til staðar á myndum fylgir ekki.

 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.