Ólafstún 12, 425 Flateyri
37.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
4 herb.
113 m2
37.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1976
Brunabótamat
55.600.000
Fasteignamat
22.850.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is- kynnir til sölu - Ólafstún 12 Flateyri - Fallegt steinsteypt einbýlishús á einni hæð, i húsinu eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofa og borðstofa, eldhús, forstofa, þvottaherbergi og geymsla. Fallegur garður með sólpalli og geymsluskúr. Þak endurnýjað og múrviðgerðir að utan árið 2022.

Nánari lýsing:

Forstofa með flísum á gólfi.
Gangur með parketi á gólfi.
Stór stofa og borðstofa með parketi á gólfi, útgengt út á sólpall úr stofunni.
Stórt opið eldhús með flísum á gólfi, falleg innrétting, helluborð og ofn, tengi fyrir uppþvottavél.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkar og sturta, hvít innrétting.
Stórt svefnherbergi með plastparketi á gólfi, stór fataskápur.
Tvö minni svefnherbergi með plastparketi á gólfi, skápur í öðru herberginu.
Þvottahús og geymsla með flísum á gólfi, útgangur út í bakgarð.
Sólpallur með skjólveggjum fyrir framan hús.
Geymsluskúr.
Fallegur garður og umhverfi.

Ummerki um rakaskemmdir á veggjum, seljandi segir að múrviðgerðir 2022 hafi komið í veg fyrir frekari rakaskemmdir.

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.