Völusteinsstræti 28, 415 Bolungarvík
45.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
6 herb.
220 m2
45.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1948
Brunabótamat
84.050.000
Fasteignamat
36.700.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is- kynnir til sölu - Völusteinsstræti 28 Bolungarvík - Stórt einbýlishús á tveimur hæðum auk bílskúrs, samtals 220 fermetrar að stærð, byggt um 1948. Á neðri hæð er inngangur og forstofa, eldhús, stofa og borðstofa, setu/sjónvarpsstofa, baðherbergi og kyndiklefi. Á efri hæð er inngangur, fjögur stór herbergi, geymsla, salerni og þvottahús.
Bílskúr er skráður 34,4 m² að stærð og er byggður í kringum 1981, efri hæð ofan á bílskúr er byggð í kringum 2012 og var þakjárn þá endurnýjað á húsinu.


Nánari lýsing:
Neðri hæð:

Aðalinngangur á neðri hæð, forstofugangur með flísum á gólfi og hiti í gólfi.
Eldhús var endurnýjað í kringum 2009, plastparket á gólfi, ljós innrétting og eyja, mikið skápapláss, helluborð og ofn, tengi fyrir uppþvottavél.
Rúmgóð stofa og borðstofa með plaspaketi á gólfi, búið er að fá leyfi til að opna út í garð þar sem er hægt að byggja sólpall/verönd.
Setu/sjónvarpsstofa með steyptu máluðu gólfi. 
Baðherbergi endurnýjað 2018, flísar á gólfi, hvít innrétting, hornbaðkar með sturtu, handklæðaofn og hiti í gólfi, hvít loftaklæðning. 
Kyndiklefi og geymsluherbergi, einnig er geymslupláss við enda gangs.

Efri hæð:
Sérinngangur á efri hæð, nýleg útihurð.
Gangur með flísum á gólfi. Hleri upp á risloft á gangi.
Svefnherbergi með plastparketi á gólfi. 
Annað rúmgott svefnherbergi með nýlegu harðparketi og fataskáp, panill í lofti.
Þriðja herbergið einnig rúmgott, nýlegt harðparket á gólfi, nýlegt hvít loftaklæðning.
Þvottaherbergi með hvítri innréttingu og flísum á gólfi, vaskur og þvottavélatengi.
Svefnherbergi í stóru 34 m² rými í viðbyggingu fyrir ofan bílskúr, fataskápur, steypt málað gólf, hluti rýmis afstúkaður og nýtist sem geymsla.

Bílskúr er 34,4 m² að stærð, hvít bílskúrshurð, steypt gólf með niðurfalli, tvöfalt steypt bílastæði fyrir framan hús.
Stór garður fyrir framan og aftan hús. 
Húsið er einangrað og klætt að utanverðu.

Framkvæmdir að sögn seljenda:
Húsið drenað ca 2008. Eldhús endurnýjað 2010, gluggi þar endurnýjaður.
Ofnalagnir gamlar að hluta, meirihluti ofna endurnýjaðir 2013 (tveir gamlir enn)..
Vatnslagnir endurnýjaðar og varmaskiptir settur upp ca. 2005.
Húsið klætt að utan ca 1995-96 og þak endurnýjað 2012. Byggt ofan á bílskúr 2012.
 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.