Smiðjugata 1, 400 Ísafjörður
55.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á þremur hæðum
7 herb.
177 m2
55.000.000
Stofur
3
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1904
Brunabótamat
72.500.000
Fasteignamat
52.900.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is- kynnir til sölu - Smiðjugata 1 Ísafirði - Fallegt og vel staðsett einbýlishús á þremur hæðum með aukaíbúð. Á fyrstu hæð er forstofa, eldhús, borðstofa, stofa og sólstofa. Á annarri hæð eru þrjú svefnherbergi, fataherbergi og baðherbergi. Í kjallara er setustofa/herbergi, lítið herbergi, þvottahús og geymsla.
Séríbúð með einu svefnherbergi, baðherbergi, eldhúsi og stofu. Tveir geymsluskúrar í garði og gott bílastæði.

Nánari lýsing:

1. hæð
Á fyrstu hæð er komið inn í litla forstofu með flísum og hita í gólfi, innri forstofa með flísum á gólfi og fatahengi. 
Eldhús með ágætri innréttingu, helluborð, háfur og ofn, uppþvottavél fylgir.  
Borðstofa með parketi á gólfi tengir eldhús og stofu.
Lítil gestasnyrting með flísum á gólfi og hita í gólfi 
Rúmgóð stofa með parketi á gólfi. 
Sólstofa, parket á gólfi, útgengt úr sólstofu út á hellulagða verönd og út í garð.
Undir sólstofu er köld geymsla.

2.hæð:
Tréstigi á milli hæða, stigagangur með parketi. Við enda gangs er fataherbergi/geymsla, parket á gólfi.
Baðherbergi með parketi á gólfi, sturtuklefi, baðkar og innrétting . 
Parket á hjónaherbergi og útgengt þaðan út á svalir sem eru ofan á sólstofu. 
Tvö barnaherbergi með parketi á gólfum, lítll skápur í öðru.

Kjallari:
Í kjallara er þvottahús og geymsla, hleri úr þvottahúsi út í garð. 
Sjónvarpsherbergi/setustofa, (má einnig nýta sem svefnherbergi) með parketi á gólfi og panil á veggjum. 
Lítið herbergi innaf setustofu. 

Aukaíbúð:
Norðanmegin er 32m² nýleg séríbúð, uppgerð 2017. 
Forstofa með flísum.
Baðherbergi með sturtu, lítil innrétting, flísar á gólfi og veggjum.
Ágætt svefnherbergi með harðparketi á gólfi. 
Stofa og eldhús í opnu rými, harðparket á gólfi, hvít eldhúsinnrétting, ofn, helluborð og lítill ísskápur.

Afgirtur garður, tveir kaldir geymsluskúrar og gott bílastæði að norðanverðu.

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.