Bakkavegur 11, 410 Hnífsdalur
42.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á þremur hæðum
6 herb.
220 m2
42.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1934
Brunabótamat
47.010.000
Fasteignamat
34.550.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is- kynnir til sölu - Bakkavegur 11 Hnífsdal - Einstaklega fallegt og rúmgott timburhús á tveimur hæðum auk kjallara og bílskúrs, húsið var byggt árið 1934 samkvæmt fasteignaskrá en bílskúr árið 1960 (holsteinn).  Húsið stendur á steyptum grunni og er kjallari steyptur en efri hæðir byggðar úr timbri.

Fyrsta hæð:
Rúmgóð forstofa með dúk á gólfi, fatahengi. 
Eldhús með hvítri innréttingu frá 2002, þá var eldhúsið endurnýjað, flísar á gólfi, úr eldhúsi er niðurgengt í kjallara. 
Rúmgóð stofa og borðstofa með eikarparketi á á gólfi. 
Svefnherbergi  með eikarparketi á gólfi,l fataskápur. 
Herbergi, nýtt í dag sem skrifstofuherbergi, plastparket á gólfi. 
Baðherbergi endurnýjað 2020, Fibó plötur á veggjum, korkflísar á gólfi, sturtuklefi, hvítur vaskaskápur, tengi fyrir þvottavél/þurrkara. 

Efri hæð/Rishæð:
Á rishæð er rúmgóður stigapallur, loft eru panilklædd og gólfefni eru málaðar timburfjalir. 
Tvö ágæt svefnherbergi og gott geymslupláss á hæðinni.

Kjallari:
Kjallari skiptist í fjögur mjög rúmgóð herbergi, þar er þvottahús (áður nýtt sem þvottahús), verkstæði, geymsla og kyndiklefi/geymsla þar sem er stigi upp í eldhús.
Sérinngangur bakatil í kjallara úr garðinum. 

Garður er stór og er þar stór kartöflugarður ásamt trjágróðri.
Bílskúr er um það bil 35 m² að stærð.

Baðherbergi var endurnýjað árið 2020.
Þakjárn var skipt um árið 1998.
Rafmagnsfýring vegna ofnalagna endurnýjuð 2021. 

 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.