Mánagata 3, 400 Ísafjörður
79.900.000 Kr.
Fjölbýli
7 herb.
229 m2
79.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1927
Brunabótamat
80.200.000
Fasteignamat
53.700.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is - kynnir til sölu - Mánagata 3 Ísafirði - Fallegt og vel staðsett einbýlishús á fjórum hæðum í miðbæ Ísafjarðar. Séríbúð í kjallara sem er í útleigu er með stofu og eldhúsi í opnu rými, baðherbergi og svefnherbergi, einnig er geymsla og vinnustofa í kjallara. 
Íbúð á efri hæð, á 1. hæð er forstofa, eldhús, baðherbergi, og stofur, á 2. hæð eru fjögur svefnherbergi og baðherbergi, á rishæð er setustofa og ágætt geymslu/vinnupláss.


Nánari lýsing:
1.hæð
Aðalinngangur á 1.hæð, þar er flísalögð forstofa, flísar á gólfi.
Gangur, stofa og sjónvarpsstofa, slípaðar fjalir á gólfum.
Rúmgott eldhús með hvítri innréttingu, gashelluborð og ofn. Útgengt á sólpall úr eldhúsi og þaðan niður í garð.
Baðherbergi með flísum á gólfi, hiti í gólfi, sturtuklefi, innrétting og upphengt salerni.
Þvottaaðstaða á baðherbergi.

2.hæð
Tréstigi upp á 2.hæð, stigapallur, harðparket á gólfi. 
Fjögur svefnherbergi á hæðinni með harðparketi á gólfum. Stórir fataskápar í tveimur herbergja.
Baðherbergi er flísalagt, hvít innrétting og baðkar.

Rishæð:
Tréstigi upp á rishæð sem er opið rými og nýtist í dag sem setu/sjónvarpsstofa, ágætt geymslupláss þar.

Kjallari:
Í kjallara er sér íbúð, forstofa, stofa og eldhús í opnu rými.
Svefnherbergi með parketi.
Baðherbergi með ágætri innréttingu og sturtu klefa, dúkur á gólfi.
Í kjallara er einnig góð geymsla og vinnustofa.

Sólpallur í garði og hellulögð verönd. 
Eignarlóð skráð 183 m².

 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.