Smiðjugata 10, 400 Ísafjörður
25.000.000 Kr.
Parhús/ Parhús á tveimur hæðum
5 herb.
137 m2
25.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1874
Brunabótamat
54.000.000
Fasteignamat
37.550.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is- kynnir til sölu - Smiðjugata 10 Ísafirði - Vel staðsett fimm herbergja 137,6 m² parhús á tveimur, húsið stendur á 245 m² eignarlóð.
Í húsinu er fjögur svefnherbergi, stofa, baðherbergi, eldhús, geymsla og kjallari.


Neðri hæð:
Aðalinngangur Smiðjugötumegin, þar er forstofugangur með dúk á gólfi.
Baðherbergi með baðkari, dúkur á gólfi.
Eldhús með eldri innréttingu, eldavél, inn af eldhús geymsla og bíslag, skápur þar, útgengi út út í bakgarð. 
Rúmgóð stofa með plastparketi á gólfi. 

Efri hæð :
Stigi upp á efri hæð, stigapallur og gangur með teppi. 
Fjögur rúmgóð svefnherbergi á efri hæðinni. 
Gólfefni eru fjalir, dúkur og plastparket. 

Annað bíslag sunnanmegin, þar er geymsla og lítill kjallari undir hluta suðurenda hússins.
Stór garður Tangagötumegin, eignarlóð er skráð 245 m².
Hluti útveggja eru steyptir, annars er húsið byggt úr timbri.

Eignin þarfnast viðhalds og endurbóta að utan sem innan, eru áhugasamir hvattir til að skoða eignina með það í huga. 

 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.