Stakkanes 6, 400 Ísafjörður
44.000.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
4 herb.
173 m2
44.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1988
Brunabótamat
81.100.000
Fasteignamat
38.050.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is - kynnir til sölu - Stakkanes 6 Ísafirði - Fallegt endaraðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr. Húsið er skráð 144,2 m² og bílskúr er 29,6 m², samtals 173,8 m². 
Skipulag eignar: Á neðri hæð er forstofa, þvottahús, geymsla og köld geymsla, þrjú svefnherbergi, stærra baðherbergi og minna baðherbergi . Á efri hæð er opin stofa og borðstofa, svalir, sólstofa og eldhús. Innangengt í bílskúr úr þvottahúsi.  Fallegur garður bakatil með stórum sólpalli. Lítill tækja/geymsluskúr fyrir framan hús og gott malbikað bílaplan. Eldhús endurnýjað 2023.

Nánari lýsing:

Forstofa með flísum og hita í gólfi, fataskápur.
Þvottahús með flísum á gólfi og skápum. Útgengt út í garð úr þvottahúsi, hringstigi af palii upp á bílskúrssvalir, góður sópallur
Gangur með parketi, nokkur þrep niður þar sem er lítil snyrting með sturtu á neðsta palli.
Þrjú svefnherbergi, stór skápur í hjónaherbergi og minni skápar í hinum herbergjum, harðparket á gólfum .
Baðherbergi flísalagt, baðkar með sturtu, nýlegur ofn, ágæt innrétting og skápur.

Efri hæð:
Tréstigi milli hæða.
Komið upp í  stóra og bjarta stofu og borðstofu með flísum á gólfi, góð lofthæð. Góðar svalir framan á húsi, frábært útsýni yfir fjörðinn.
Eldhús með nýrri innréttingu og tækjum, spanhelluborð, ofn og örbylgjuofn, uppþvottavél, flísar á gólfi.
Stór sólstofa með flísum á gólfi og þaðan er útgengt á stórar svalir ofan á bílskúr.

Úr þvottahúsi er innangengt í geymslu og inn í 29,6 m² bílskúr með steyptu gólfi, hillur og geymsla aftast, fjarstýrður hurðaopnari.
 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.