Hóll 1, Bolungarvík
24.900.000 Kr.
Einbýlishús
7 herb.
180 m2
24.900.000
Stofur
2
Herbergi
7
Baðherbergi
2
Svefnherbergi
5
Byggingaár
1963
Brunabótamat
63.050.000
Fasteignamat
15.800.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu -  Hóll 1 Bolungarvík - Skemmtilega staðsett einbýlishús á tveimur hæðum auk kjallara. Húsið sjálft er byggt úr timbri og er forskalað að utanverðu. Á neðri hæð er forstofa, eldhús, þvottahús, svefnherbergi, stofa og borðstofa, inngangur, forstofa og salerni að sunnanverðu og stigagangur. Á efri hæð eru fjögur svefnherbergi, baðherbergi og geymsla. 
Húsið stendur á 1000 fm  eignarlóð og er með stóran gróinn garð, húsið er frekar afskekt frá annarri byggð bæjarins og því tilvalið fyrir aðila sem vilja njóta friðsældar og kyrrðarinnar í Bolungarvik.


Nánari lýsing:
Aðalinngangur að sunnanverðu, bíslag og gangur með teppi á gólfi. 
Eldhús uppgert 1991, hvít innrétting, helluborð og ofn, parket á gólfi. 
Inn af eldhúsi er stórt þvottahús og búrgeymsla.
Eitt svefnherbergi á neðri hæð, ágætlega rúmgott, teppi á gólfi.
Stór tvískipt stofa og borðstofa með teppi á gólfi.
Sér inngangur og anddyri er að norðanverðu, þar er rúmgóð teppalögð forstofa með fatahengi, salerni og teppalagður stigi þar upp á efri hæð.

Efri hæð:
Komið upp á tepplagðan gang.
Baðherbergi með mósaík flísum á veggjum og dúkflísum á gólfi, baðkar með sturtu, vaskur og skápur.
Fjögur ágæt svefnherbergi á hæðinni, teppi og dúkur á gólfum.
Geymsluherbergi með dúk á gólfi.

Kjallari:
Í kjallara er stór geymsla og vinnuaðstaða, steypt gólf, innangengt í kjallara frá norðurhlið.

Nánari upplýsingar og skoðunartíma veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram


Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

 




Senda fyrirspurn vegna

Hóll 1

Guðmundur Óli Tryggvason
Löggiltur fasteignasali