Holtabrún 14, Bolungarvík
32.700.000 Kr.
Fjölbýlishús
4 herb.
107 m2
32.700.000
Stofur
1
Herbergi
4
Baðherbergi
1
Svefnherbergi
3
Byggingaár
1974
Brunabótamat
42.250.000
Fasteignamat
12.250.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu - Holtabrún 14 Bolungarvík, íb. 0301 - Mikið endurnýjuð, rúmgóð og falleg fjögurra herbergja íbúð á 3.hæð í fjölbýli. Frábært útsýni!
Í íbúðinni er forstofa, stofa með yfirbyggðum svölum, þrjú svefnherbergi, þvottaherbergi, eldhús og baðherbergi, sér geymsla í kjallara.


Nánari lýsing:
Forstofa með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Stofan er með harðparketi á gólfi og þaðan er útgengt á yfirbyggðar svalir.
Opið og skemmtilegt eldhús, ný hvít innrétting, helluborð, vifta, ofn, örbylgjuofn og innbyggð uppþvottavél og ísskápur.
Svefnherbergin eru þrjú með nýju harðparketi á gólfum.
Rúmgott hjónaherbergi með með stórum fataskáp.
Tvö minni barnaherbergi annað herbergið með lausum fataskáp.
Baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, baðkar með sturtu.
Sér þvottahús í íbúðinni með nýrri innréttingu.
Sérgeymsla íbúðar í kjallara er skráð 6,4 fm, íbúðin sjálf 101,1 fm og yfirbyggðar svalir 14,4 fm, samtals er eignin því 121,9 fm að stærð. Að utanverðu er húsið einangrað og klætt.

Endurbætur að sögn seljanda:
Síðastliðið ár hefur íbúðin verið gerð upp að mestu leyti, eldhús endurnýjað, allar innréttingar, gólfefni og innihurðir eru nýjar.  Allir rafmagnstenglar og dósir endurnýjaðar.


Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram


Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.




Senda fyrirspurn vegna

Holtabrún 14

Guðmundur Óli Tryggvason
Löggiltur fasteignasali