Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu - Hlíðarvegur 24 Ísafirði - Stórt einbýlishús á þremur hæðum ásamt stórum bílskúr. Aukaíbúð i kjallara - möguleiki á útleigutekjum, eign sem býður upp á marga möguleika.
Kjallari/neðsta hæð er steypt en efri hæðir eru úr timbri.
Miðhæð:
Aðalinngangur á miðhæð, þar er forstofa með dúk á gólfi, lítil snyrting inn af forstofu.
Hol/gangur með dúk á gólfi.
Stórt eldhús, eldri innrétting með rennihurðum. Þvottaherbergi með hlera niður í kjallara.
Rúmgóð stofa með parketi á gólfi
Rishæð:
Tréstigi upp á rishæð,stigapallur með spónaparketi, þakgluggi.
Þrjú svefnherbergi, hjónaherbergi með nægu skápaplássi, harðparket á gólfi.
Tvö minni barnaherbergi, harðparket á gólfum.
Baðherbergi með innréttingu, dúkur á gólfi, baðkar með sturtu.
Neðsta hæð:
Á neðstu hæð er séríbúð með sérinngangi að neðanverðu sem er verið að klára að gera upp.
Gangur verður flísalagður.
Gott eldhús með innréttingu og parketi á gólfi.
Inn af eldhús er nýtt baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, sturtuklefi, upphengt salerni og innrétting.
Stofa með parketi á gólfi og svefnherbergi með fataskáp inn af stofu.
Gangur með steyptu gólfi nýtist sem geymsla, þar er gamalt salerni og baðkar, útgangur við bílskúr.
Skúrinn er skráður 45,6 m² rúmgóður og er búið að laga töluvert að innanverðu. Stór bílskúrshurð að neðanverðu, hiti og rafmagn.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.