Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu - Fjarðarstræti 19 Ísafirði - Stór sérhæð í tvíbýlishúsi ásamt helmingshluta í bílskúr. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, eldhús, baðherbergi og þvottaaðstaða, stofa og borðstofa og gott risloft. Gott útsýni út fjörðinn.
Sérinngangur er á 1.hæð, stigagangur og forstofa þar.
Komið inn á efri hæð í parketlagt hol.
Rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými með parketi á gólfi, útgengt út á norðursvalir.
Rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi og stórum fataskáp.
Annað herbergi einnig með parketi á gólfi.
Þriðja herbergið einnig með parketi á gólfi.
Ágætt eldhús með korki á gólfi og hvítri innréttingu, helluborð og ofn, tengi fyrir uppþvottavél.
Baðherbergi með þvottaaðstöðu, hvít innrétting, baðkar með sturtu, baðkarið nýlegt og flísar nýlegar.
Stórt risloft er fyrir ofan íbúð með góðri lofthæð.
Bílskúr er skráður 27 m² að stærð og er í óskiptri sameign með neðri hæð.
Sér hita og rafmagnsmælar.
Góður sameiginlegur garður.
Eignin er vel staðsett á eyrinni þar sem er stutt í skóla og alla þjónustu.
Húsið var málað að utanverðu sumarið 2022.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.