Hlíðarvegur 40, Ísafjörður
55.900.000 Kr.
Raðhús
5 herb.
183 m2
55.900.000
Stofur
1
Herbergi
5
Baðherbergi
1
Svefnherbergi
4
Byggingaár
1957
Brunabótamat
67.900.000
Fasteignamat
40.650.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu - Hlíðarvegur 40 Ísafirði - Töluvert endurnýjað raðhús á þremur hæðum með séríbúð í kjallara.
Á miðhæð er aðalinngangur, forstofa, opið eldhús, stofa og borðstofa, svalir. 
Á efstu hæð er stigagangur, þrjú svefnherbergi, svalir, geymsla og baðherbergi.
Í kjallara er hægt að útbúa sérbúð, þar er sérinngangur að aftanverðu, forstofa, salerni, eldhús og stórt herbergi. 


Nánari lýsing:
Miðhæð:
Aðalinngangur
er á miðhæð, komið inn í forstofu með flísum, laus fataskápur fylgir.
Opið eldhús með ágætri innréttingu, eyja með helluborði og háf, veggofn, tengi fyrir uppþvottavél, harðparket á gólfi. 
Stofa og borðstofa með harðparketi, gott útsýni yfir bæinn. Útgengt er á svalir frá stofu.
Dúklagður stigi upp á efri hæð.

Efri hæð:
Gangur með harðparketi.
Lítil geymsla með hillum við enda gangsins.
Hjónaherbergi með nýlegum fataskáp, harðparket á gólfi, svalir út frá hjónaherbergi, gott útsýni yfir fjörðinn. 
Annað rúmgott svefnherbergi með harðparketi.
Þriðja svefnherbergið einnig með harðparketi á gólfi, nýr fataskápur.
Baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, hiti í gólfi, sturtuklefi og hvít innrétting.

Kjallari:
Steyptur stigi er úr eldhúsi niður á neðstu hæð hússins.
Komið niður í rúmgott hol með parketi á gólfi, geymsla með hillum og köld geymsla undir stiga.
Þvottahús flísalagt, sturtuklefi, innrétting og vaskur, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Séríbúð:
Sér inngangur á neðri hæð, forstofa, lítið salerni inn af forstofu.
Eldhús með hvítri innréttingu, helluborð og vaskur. 
Stórt herbergi með parketi á gólfi.

Baðherbergi endurnýjað í kringum 2010.
Búið er að skipta um mest allt gler í húsinu.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur 
eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram


Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.


 




Senda fyrirspurn vegna

Hlíðarvegur 40

Guðmundur Óli Tryggvason
Löggiltur fasteignasali