Heiðarbraut 14, Hnífsdalur
43.000.000 Kr.
Einbýlishús
5 herb.
138 m2
43.000.000
Stofur
1
Herbergi
5
Baðherbergi
1
Svefnherbergi
4
Byggingaár
1952
Brunabótamat
53.050.000
Fasteignamat
18.250.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu - Heiðarbraut 14 Hnífsdal - Fallegt og skemmtilega staðsett steinsteypt einbýlishús á einni hæð. Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, eldhús, stofa og borðstofa, baðherbergi, forstofa, þvottahús og geymsla. Þakið á húsinu var endurnýjað 2021.

Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi, hiti í gólfi.
Gangur með harðparketi á gólfi, stór fataskápur þar.
Stórt og fallegt eldhús með viðarinnréttingu, bakaraofn, gashelluborð og háfur frá Smeg, tengi fyrir uppþvottavél, stór ísskápur með vatns og klakavél fylgir. Flísar á gólfi, hiti í gólfi, gott skápapláss og borðkrókur.
Rúmgóð stofa og borðstofa með harðparketi á gólfi, góður arinn til viðarbrennslu, útgengt á sólpall úr stofu, geymsluskúr á pallinum, frábært útsýni yfir dalinn.
Fjögur svefnherbergi, hjónaherbergi með stórum fataskáp, harðparket gólfi.
Svefnherbergi með harðparketi á gólfi.
Annað svefnherbergi með harðparketi á gólfi.
Fjórða svefnherbergið er rúmgott, nýtt sem sjónvarpsherbergi í dag, einnig með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hiti í gólfi, baðkar með sturtu, dökk innrétting og skápur.
Stórt þvottahús með innréttingu, hillur, skápar og vaskur, sér útgangur þar. Kyndiklefi/geymsla inn af þvottahúsi.
Í kjallara er óskráð kalt geymslurými.
Afgirtur gróinn garður.

Framkvæmdir að sögn seljenda: Þakið endurnýjað 2021. Harðparket frá 2014. Hurð út á sólpall frá ca 2018. Sólpallur byggður um 2010, heitur pottur sem er til staðar fylgir með eigninni.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram


Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.




 




Senda fyrirspurn vegna

Heiðarbraut 14

Guðmundur Óli Tryggvason
Löggiltur fasteignasali