Miðtún 4, Tálknafjörður
16.500.000 Kr.
Fjölbýlishús
3 herb.
81 m2
16.500.000
Stofur
1
Herbergi
3
Baðherbergi
1
Svefnherbergi
2
Byggingaár
1977
Brunabótamat
38.300.000
Fasteignamat
8.060.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu - Miðtún 4 Tálknafirði, íbúð 0203 - Þriggja herbergja íbúð á 2.hæð í  fimm íbúða fjölbýlishúsi. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, baðherbergi, stofu með svölum og tveimur svefnherbergjum, sér 5,4 m² geymsla er á jarðhæð.
Ofnalagnir og neysluvatnslagnir endurnýjaðar. Nýir gluggar í íbúðinni að hluta til. Nýlegt kyndikerfi/rafmagnstúba og nýir vatnshitakútar fyrir neysluvatn.


Sameiginlegur inngangur og stigagangur upp á 2.hæð.
Komið inn í forstofugang með fatahengi og dúk á gólfi. 
Rúmgóð stofa með dúk á gólfi, útgengt út á suðursvalir með fallegu útsýni yfir fjörðinn.
Tvö svefnherbergi með dúk á gólfi, fataskápur í stærra herberginu.
Baðherbergi, baðkar með sturtu, innrétting, dúkur á gólfi.
Eldhús með upprunalegri eikarinnréttingu, korkflísar á gólfi.
Þvottahús og geymsla inn af eldhúsi.
Sérgeymsla á jarðhæð er skráð 5,4 m². 

Húsið er einangrað og klætt að utanverðu með Steni klæðningu. 

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur 
eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram


Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.
 




Senda fyrirspurn vegna

Miðtún 4

Guðmundur Óli Tryggvason
Löggiltur fasteignasali