Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu Pólgötu 4 Ísafirði - Rúmgóð fjögurra herbergja íbúð ásamt bílskúr í miðbæ Ísafjarðar. Seljandi skoðar skipti á öðrum eignum.
Sameiginlegur inngangur/forstofa og stigi upp á 2. hæð.
Forstofugangur með harðparketi á gólfi.
Stórt þvottahús með góðum stálvask og skáp, dúkur á gólfi.
Baðherbergi með baðkari, lökkuð innrétting.
Opið eldhús sem á eftir að fullklára.
Stór borðstofa með parketi á gólfi, lítið búr með hillum..
Rúmgóð stofa með parketi á gólfi, góð lofthæð.
Svefnherbergi 1 er inn af stofu/borðstofu, stórt herbergi, nýlegt harðparket á gólfi.
Svefnherbergi 2 er með harðparketi á gólfi
Svefnherbergi 3 er með harðparketi á gólfi
Bílskúr er skráður 24,4 m² að stærð og er byggður úr timbri, þarfnast viðhalds.
Stutt í alla þjónustu og örstutt í grunnskólann.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.