Hrannargata 1, Ísafjörður
61.900.000 Kr.
Einbýlishús
6 herb.
238 m2
61.900.000
Stofur
2
Herbergi
6
Baðherbergi
2
Svefnherbergi
4
Byggingaár
1909
Brunabótamat
80.100.000
Fasteignamat
53.800.000

*** Ath. eignin er seld með fyrirvara og er í ferli***
Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu - Hrannargata 1 Ísafirði - Reisulegt og fallegt timburhús á Ísafirði, húsið er á fjórum hæðum að kjallara og risi meðtöldu. Á 1.hæð er aðalinngangur, forstofugangur, baðherbergi, eldhús, búrgeymsla, rúmgóð stofa og borðstofa og stórt svefnherbergi. Á 2. hæð eru þrjú rúmgoð svefnherbergi, setustofa og baðherbergi. Á rishæð er opið rými sem hægt væri að nýta sem herbergi og geymslur. Í kjallara er stórt þvottahúsrými og tvær stórar geymslur. Garður með sólpalli og bílastæði. Góð staðsetning og útsýni, stutt í alla þjónustu.


Nánari lýsing:
1. hæð:

Aðalinngangur frá Hrannargötu, komið inn í forstofugang með flísum á gólfi og hita í gólfi. 
Salerni með flísum á á gólfi og veggjum, skápur og innrétting
Rúmgott eldhús með dökkri innréttingu, mikið skápapláss, helluborð, vifta og ofn, tengi fyrir uppþvottavél, flísar á gólfi og hiti í gólfi. 
Inn af eldhúsi er búrgeymsla og sér útgangur út á pall og sólpall.
Stór stofa og borðstofa með parketi á gólfi, nýlegir ofnar og ofnalagnir þar.
Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.

2.hæð:
Timburstigi upp á aðra hæð, þar er stigapallur og góð setustofa/sjónvarpsstofa með parketi. 
Baðherbergi endurnýjað 2021, walk-in sturtuklefi, hvít innrétting og skápur, korkfjalir á gólfi og fibo-trespo plötur á veggjum, hiti í gólfi.
Herbergi 1 með parketi á gólfi og fataskáp.
Herbergi 2 er mjög rúmgott með parketi og fataskáp
Herbergi 3, stærsta herbergið, nýtt sem vinnuherbergi í dag, frábært útsýni yfir bæinn.

Rishæð: Opið rými sem væri hægt að innrétta sem herbergi, geymslur ofl. 
Kjallari: Inngangur í kjallara af sólpalli, stórt þvotta og geymslurými með steyptu gólfi, vinnuborð með vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Tvö stór geymslu/vinnuherbergi með hillum og steyptu gólfi.

Sólpallur með skjólvegg, gott úti geymslupláss undir stiga, steypt bílastæði norðan megin við húsið. 
Eignin stendur á umþb 277 fm eignarlóð.

Eldhús endurnýjað um 2007, sem og forstofa og baðherbergi á 1.hæð. 
Baðherbergi á 2.hæð endurnýjað um 2021. 

Nánari upplýsingar og skoðunartíma veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram


Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.





 




Senda fyrirspurn vegna

Hrannargata 1

Guðmundur Óli Tryggvason
Löggiltur fasteignasali