Hrunastígur 1, 470 Þingeyri
57.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
6 herb.
166 m2
57.000.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1976
Brunabótamat
72.650.000
Fasteignamat
25.600.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is - kynnir til sölu - Hrunastígur 1 Þingeyri - Mikið endurnýjað og fallegt einbýlishús með frábæru útsýni yfir Dýrafjörðinn. Tveggja herbergja íbúð á neðri hæð er góð til útleigu.
Á efri hæð er sérinngangur, forstofa, opið eldhús og borðstofa, stofa með svölum, þvottaherbergi, baðherbergi og þrjú ágæt svefnherbergi. Á neðri hæð er sérinngangur, forstofa, baðherbergi, kyndiklefi, stofa, eldhús og svefnherbergi.


Nánari lýsing.
Efri hæð:

Forstofa með flísum á gólfi. 
Opið eldhús með innréttingu frá HTH, spanhelluborð, ofn og uppþvottavél fylgir. Við borðstofu er stór útsýnisgluggi með glæsilegu útsýni yfir fjörðinn.
Rúmgóð stofa með útgengi út á stórar svalir sem liggja á norður og austurhlið, möguleiki á að gera stiga niður í garð að austanverðu.
Svefnálmugangur, ágætt þvottaherbergi með flísum á gólfi. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innrétting frá HTH og góð "walk-in" sturta.
Rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskáp. 
Tvö minni svefnherbergi, annað þeirra með nýjum fataskáp.
Nýlegt harðparket á gólfum, flísar á forstofu, baði og þvottaherbergi.

Neðri hæð:
Íbúð á neðri hæð er í endurnýjun, verður afhent í núverandi ástandi, búið er að setja upp litla eldhúsinnréttingu, þar eru nýjar vatnslagnir, baðtæki og gólfefni geta fylgt með óuppsett.
Sérinngangur, forstofa, baðherbergi, kyndiklefi, stofa, eldhús og svefnherbergi.

Framkvæmdasaga seljenda frá 2020.
Þakkantur endurnýjaður. 
Ný eldhúsinnrétting og tæki. Ný gólfefni, harðparket og flísar. 
Sagað fyrir stærri glugga í eldhús og nýr stór gluggi settur þar.
Nýr gluggi og svalahurð að norðanverðu. Nýtt gler og listar í aðra glugga.
Baðherbergi endurnýjað.
Hiti í gólfi í eldhús, stofu og forstofu, einnig baðherbergi. 
Ný klæðning í loft.
Nýtt vatnsinntak og nýjar vatnslagnir fyrir neysluvatn.
Húsið heilmálað að utanverðu.
Þakjárn er gamalt.
 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.