Sundstræti 39, 400 Ísafjörður
67.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á þremur hæðum
5 herb.
227 m2
67.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1903
Brunabótamat
67.650.000
Fasteignamat
51.650.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is -  og Guðmundur Óli lögg. fasteignasali kynna til sölu - Sundstræti 39 Ísafirði - töluvert endurnýjað stórt einbýli á þremur hæðum og með stórum bílskúr. Húsið var endurbyggt og stækkað að fyrri eigendum. Á miðhæð er forstofa, stofa og borðstofa, eldhús og baðherbergi. Á efri hæð er góður stigapallur og fjögur svefnherbergi. Í kjallara er þvottahús og gott geymslu og vinnurými. Bílskúr er um 48 fm að stærð. Nýtt þak á húsinu frá 2022. 

Nánari lýsing:
1. hæð

Aðalinngangur, forstofa með flísum á gólfi og hita í gólfi, laus fataskápur fylgir.
Rúmgóð stofa og borðstofa, parket á gólfi.
Baðherbergi, sturtuklefi, flisar á gólfi og veggjum, hiti í gólfi, upphengt salerni, hvít innrétting, handklæðaofn.
Eldhús, eikarinnrétting, gashelluborð, ofn og háfur korkflísar á gólfi.
Við eldhús er gengið niður í kjallara, tréstigi milli hæða.

2. hæð:
Stigi liggur úr stofu upp á aðra hæð, þar er  góður stigapallur, rými sem hægt er að nota t.d. undir vinnuaðstöðu, harðparket á gólfi.
Í suðurenda, yfir bílskúr er stórt herbergi sem nú er nýtt sem sjónvarpsherbergi, þaðan er útgengt á stórar svalir sem eru eru dúklagðar og góð girðing/skjólveggur í kringum svalirnar.
Hjónaherbergi með fataskáp, plastparket á gólfi.
Annað rúmgott svefnherbergi einnig með parketi og fataskáp.
Minna barnaherbergi með parketi á gólfi.

Kjallari:
Kjallari er skráður 55,3 fm að stærð og skiptist í þrjú rými, opið geymslu og vinnurými,  þvottahús og geymsla með hillum. Útgangur er úr kjallara út í bakgarð.
Bílskúr er um 45 m² að gólfflatarmáli, bílskúrshurð með fjarstýrðum opnara, steypt gólf, hillur, heitt vatn og kynding í bílskúr, góð lofthæð.
Seljandi lætur setja upp nýja útihurð fyrir afhendingu. Svalir dúklagðar og lagaðar 2020.
 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.