Heiðarbrún 4, 415 Bolungarvík
59.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
179 m2
59.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1977
Brunabótamat
85.650.000
Fasteignamat
43.600.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is - kynnir til sölu - Heiðarbrún 4 Bolungarvík - Fallegt og töluvert endurnýjað einbýlishús á einni hæð ásamt góðum bílskúr.
Eignin skiptist í stofu og borðstofu í opnu rými, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og 28,6 fm bílskúr.

Forstofa með fataskáp,flísar og hiti í gólfi.
Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Útgengt er út á sólpall.
Eldhús með ljósri innréttingu,uppþvottavél, spanhelluborð og ofn, flísar og hiti í gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott og með parketi á gólfi
Svefnherbergi I er rúmgott,  parket á gólfi.
Svefnherbergi II rúmgott með parketi á gólfi.
Svefnherbergi III rúmgott með parketi á gólfi.
Baðherbergi með "walk-in" sturtu, upphengt salerni, handklæðaofn, hiti í gólfum, fibo plötur á veggjum og flísar á gólfi. 
Þvottahús með innréttingu, vaskur, flísar og hiti í gólfi. Útgengt út í garð.

Bílskúr með flísalögðu gólfi og hurð með fjarstýrðum opnara.  
Hleri í bílskúr upp á risloft sem liggur yfir öllu húsinu.
Stór garður með tveimur sólpöllum, bílastæði fyrir framan bílskúr. 

Framkvæmdasaga seljenda: Baðherbergi endurnýjað 2020. Húsið málað að utanverðu 2022. Bílskúr flísalagður 2022.
Framkvæmdasaga fyrri eiganda: Gluggar endurnýjaðir 2013, útihurðir endurnýjaðar 2013, eldhús endurnýjað 2010, eikarparket á stofu og gang 2016.

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.