Múlaland 14, 400 Ísafjörður
33.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
114 m2
33.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1990
Brunabótamat
48.350.000
Fasteignamat
32.750.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is - kynnir til sölu - Múlaland 14 Ísafirði, íbúð 0203 - Rúmgóð þriggja herbergja íbúð á 2.hæð með yfirbyggðum svölum, frábært útsýni. ATH íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Komið inn í forstofugang með vinylparketi á gólfi, ágætur fataskápur þar.
Stórt hol/borðstofa með vinylparketi á gólfi. 
Rúmgóð stofa með vinylparketi á gólfi. Útgengt úr stofu á stórar yfirbyggðar svalir með frábæru útsýni yfir fjörðinn.
Eldhús með hvítri innréttingu, eldavél og vifta, tengi fyrir uppþvottavél og gott skápapláss.
Rúmgott hjónaherbergi með vinylparketi á gólfi, stór fataskápur.
Annað svefnherbergi með fataskáp og vinylparketi á gólfi.
Baðherbergi með flisum á gólfi, baðkar með sturtu og skápur.
Rúmgott þvottaherbergi/geymsla í íbúð með vaski.

Sér geymsla 5,5 m² á jarðhæð fylgir íbúðinni. Íbúðin sjálf er skráð 109,3 m² að stærð
Sameiginlegur inngangur og teppalagður stigagangur.
Yfirbygging svala fór fram að mestu árið 2020. Suðurgafl klæddur árið 2023 með álklæðningu.

 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.