Urðarvegur 52, 400 Ísafjörður
66.000.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
6 herb.
195 m2
66.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1982
Brunabótamat
86.000.000
Fasteignamat
63.850.000

Fasteignasala Vestfjarða kynnir til sölu - Urðarvegur 52 Ísafirði - Fallegt 196 m² sex herbergja raðhús á tveimur hæðum. Á neðri hæð er 28 m² bílskúr, forstofa, hol/gangur, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og geymsla.
Á efri hæð er rúmgóð stofa og borðstofa, svalir, eldhús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi. 


Nánari lýsing:
Forstofa með lausum fataskáp. 
Ágætt svefnherbergi með spónaparketi á gólfi.
Hol/gangur með parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, góð aðgengileg sturta.
Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp. 
Þvottahús með vaski, vinnuborði og hillum. Geymsla með hillum inn af þvottahúsi.
Hol/gangur með parketi á gólfi, þar er steyptur teppalagður stigi milli hæða. 

Efri hæð:
Eldhús
með hvítri innréttingu, eldavél, tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfi, mjög gott skápapláss og borðkrókur.
Stór og björt stofa og borðstofa með parketi á gólfi, útgengt út á svalir, frábært útsýni yfir fjörðinn.
Svefnálmugangur með parketi, þar er hleri upp í risloft.
Baðherbergi með hvítri innréttingu og baðkari. 
Hjónaherbergi með stórum fataskáp, spónaparket á gólfi, útgengt út á ágæta verönd bakatil.
Tvö minni svefnherbergi með spónaparketi á gólfum.

Bílskúr: Innangengt inn í 28 m² bílskúr úr forstofu, steypt málað gólf, hillur og vinnuborð, heitt og kalt vatn, bílskúrshurð úr timbri og inngönguhurð. 
Steypt 2ja bíla bílastæði fyrir framan hús.
Þakjárn/þak á húsinu er upprunalegt.


 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.