Smárateigur 3, 410 Hnífsdalur
19.900.000 Kr.
Sumarhús
4 herb.
152 m2
19.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1985
Brunabótamat
79.800.000
Fasteignamat
5.011.335

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is  - Til sölu - Smárateigur 3 Hnífsdal - Fallegt 107,5 m² sumarhús á einni hæð með 45 m² bílskúr. Í húsinu eru tvö svefnherbergi, forstofa, stofa og borðstofa, eldhús, þvottahús og baðherbergi.  Ágætur garður og stórt bílaplan. Hluti innbús getur fylgt með eigninni í samráði við seljendur. Kvöð um dvalartíma er á eigninni - búseta aðeins heimil á tímabilinu 1. maí til 31. október ár hvert. 

Nánari lýsing:
Forstofa 
með flísum á gólfi.
Gangur með parketi. 
Opið hol með parketi, borðstofa með parketi.
Tvö þrep niður í setustofu, parket á gólfi og góður arinn. Útgengt þaðan út á steypta verönd með skjólveggjum.
Eldhús með dökkri innréttingu, flísar á gólfi, eldavél og tengi fyrir uppþvottavél. 
Þvottaherbergi með hvítri innréttingu, vaskur og tengi fyrir þvottavél, sérútgangur.
Baðherbergi með baðkari og sturtuklefa, flísar á gólfi og veggjum, dökk innrétting. Lítil geymsla inn af baði.
Stórt svefnherbegi með parketi á gólfi, stór fataskápur. 
Annað herbergi einnig með parketi á gólfi og fataskáp. 
Möguleiki á að breyta borðstofu í svefnherbergi. 

Bílskúr er tvöfaldur, steypt gólf, tvær eldri timburhurðir og inngönguhurð, ágætt geymslupláss. 

 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.