Hafnargata 110, 415 Bolungarvík
59.900.000 Kr.
Einbýli
6 herb.
190 m2
59.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1943
Brunabótamat
80.150.000
Fasteignamat
35.100.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is- kynnir til sölu - Hafnargata 110 Bolungarvík - Töluvert endunýjað og skemmtilega staðsett steinsteypt 150 m² einbýlishús á tveimur hæðum ásamt 40 m² bílskúr. Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, tvær stofur, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymsla, fallegur garður. Ath. að hluti innbús getur fylgt með eigninni.

Nánari lýsing:
Efri hæð: Forstofa með flísum á gólfim gott fatahengi og fataskápur.
Gangur/hol með parketi.
Tvö ágæt svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi nýlega endurnýjað (2021), hiti í gólfi, með flísar á gólfi og veggjum, sturtuklefi og innrétting.
Eldhús með hvítri innréttingu, eldavél, tengi fyrir uppþvottavél, búr með hillum inn af eldhúsi.
Rúmgóð stofa, parket á gólfi.
 
Neðri hæð:
Hringstigi úr stofu niður á neðri hæð,sem er með minni lofthæð, þar er góð sjónvarps/setustofa með parketi.
Svefnherbergi með parketi á gólfi.
Stórt þvottahús með skápum og ágæt geymsla, möguleiki er á að stækka neðri hæðina.
Bílskúr er 40 m² að stærð, byggður úr holsteini, vatn, bílskúrshurð með opnara, inngönguhurð, rafmagn og kynding í bílskúr.
Köld geymsla afstúkuð í enda bílskúrs.

Hellulögð stétt og tvöfalt bílastæði fyrir framan bílskúr, fallegur garður við sjávarborðið, geymsluskúr og verönd með skjólveggjum.

Framkvæmdir að sögn seljenda:
Þak endurnýjað 2022. Baðherbergi endurnýjað 2021. Skipt um stóran hluta glers 2020.

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.