Langeyrarvegur 3, 420 Súðavík
Tilboð
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
1 herb.
390 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2005
Brunabótamat
100.000.000
Fasteignamat
20.000.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is - kynnir til sölu - Sætt og salt ehf. -  fasteignin Langeyrarvegur 3 Súðavík - Tilboð óskast -  Til sölu er rekstur súkkulaði og konfektgerðarinnar Sætt og salt ehf. sem rekur einnig kaffihús, til stendur að selja rekstur fyrirtækisins með öllum tækjum, innbúi, lager og viðskiptavild auk fasteignar en einnig kemur til greina að áhugasamir geti líka aðeins keypt rekstur fyrirtækisins sér með öllum tækjum, innbúi, lager, viðskiptavild og vörumerki. 

Húsnæðið er atvinnu/iðnaðarhúsnæði á tveimur hæðum á Langeyri við Súðavík. Í húsinu er nú starfrækt súkkulaði og konfektgerðin Sætt og salt ehf.  sem rekur lítið og fallegt kaffihús ásamt súkkulaðigerðinni. Húsið er byggt á stálgrind árið 2005 samkvæmt fasteignaskrá og er samtals um 390 fm að stærð. Neðri hæð sem er skráð 202,5 fm að stærð og efri hæð 197,8 fm.


Nánari lýsing:
Inngangur og forstofa með flísum á gólfi. 
Kaffihús og afgreiðsla, sæti fyrir um það bil 20 manns, fallegt útsýni út Álftafjörðinn. Salerni fyrir viðskiptavini. 
Stórt opið framleiðslurými eftir endilangri bakhlið eignar.
Sér salerni fyrir starfsmenn og lítil skrifstofa.
Stórt móttöku og lagerrými með epoxýgólfi, stór iðnaðarhurð með rafstýringu.
Ágæt kaffistofa fyrir starfsfólk hægra megin við innganginn, þar er parket á gólfi.
Úr kaffistofu liggur stigi upp á efri hæð sem skiptist í tvö rými, efri hæðin er skráð 197,8 fm að stærð og nýtist í dag sem geymslurými.

Einnig kemur til greina að selja rekstur fyrirtækisins með öllum tækjum, innbúi, lager og viðskiptavild aukalega (ekki innifalið í ásettu verði).

Þriggja fasa rafmagn - Ljósleiðari - Varmadæla til kyndingar.
Eignin er almennt í góðu standi að innan sem utanverðu.
Stórt malbikað bílastæði fyrir framan hús.


 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.