Suðurtangi 2, 400 Ísafjörður
49.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
5 herb.
184 m2
49.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1964
Brunabótamat
52.300.000
Fasteignamat
47.437.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is - kynnir til sölu - Suðurtangi 2 Ísafirði - Stór fimm herbergja íbúð ásamt bílskúr, samtals 185 m² að stærð. Á 2.hæð eru fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, stofa/borðstofa, eldhús og geymsla. Á jarðhæð er forstofuherbergi og 38 m² bílskúr.  Íbúðin sjálf er skráð 145,9 m² að stærð. 

Nánari lýsing:
Sérinngangur á jarðhæð, þar er sólpallur fyrir framan hús.
Stórt forstofuherbergi með fataskáp. 
Stigi upp á efri hæð, þar er gangur með flísum á gólif.
Nýlegt baðherbergi með sturtuklefa, flísar á gólfi og veggjum.
Svefnherbergi með harðparketi á gólfi og ágætum fataskáp.
Stór og björt stofa og borðstofa með harðparketi á gólfi.
Eldhús með hvítri innréttingu, flísar á gólfi, helluborð, háfur, ofn og tengi fyrir uppþvottavél.
Svefnálma í suðurhluta, þar eru þrjú svefnherbergi með harðparketi á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með stórum fataskáp. 
Tvö rúmgóð svefnherbergi með lausum fataskápum, útgengt út á suðursvalir úr öðru herberginu.
Baðherbergi, hvít innrétting, baðkar, stór vaskur, sturtuklefi, flísar á gólfi og veggjum. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsluherbergi við hlið baðherbergis, einnig er geymsluloft yfir íbúð að hluta. 
Á jarðhæð er bílskúr sem er um 39 m² að stærð, bílskúrinn er á sér fastanúmeri, 

Nýlegir gluggar eru í íbúðinni. 
Þakjárn endurnýjað 

 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.