Þuríðarbraut 7, 415 Bolungarvík
35.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Tvíbýli
3 herb.
110 m2
35.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1912
Brunabótamat
47.150.000
Fasteignamat
24.950.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is- kynnir til sölu - Þuríðarbraut 7 Bolungarvík  - Rúmgóð þriggja herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi.
Í íbúðinni er forstofa, hol/gangur, stofa/borðstofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi og eldhús.  


Nánari lýsing:
Forstofa
með fataskáp, flísar á gólfi og hiti í gólfi.
Stórt hol/gangur með parketi, hiti í gólfi, gott tölvu-vinnurými þar, einnig er mögulegt að útbúa geymslu eða jafnvel lítið svefnherbergi þar. 
Baðherbergi með flísum á gólfi, hiti í gólfi, baðkar og góður sturtuklefi, innrétting, stór skápur og þvottaaðstaða.
Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og stórum fataskáp, hiti í gólfi.
Nokkur þrep upp í stofu og eldhúsrými.
Eldhús með hvítri innréttingu, helluborð og ofn, tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfi.
Ágæt stofa og borðstofa með útgangi á suðursvalir, parket á gólfi.
Svefnherbergi með parketi og stórum fataskáp.


Þakjárn endurnýjað 2014.
Baðherbergi endurnýjað 2014, hitakerfi og rafmagn endurnýjað að hluta 2014. 

Húsið er einangarð og klætt að utan. Sérbílastæði við hlið hússins.

 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.