Hafnarstræti 18, 400 Ísafjörður
54.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
5 herb.
158 m2
54.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1906
Brunabótamat
63.600.000
Fasteignamat
56.150.000
Áhvílandi
13.178.425

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is - Til sölu er Hafnarstræti 18 Ísafirði - Falleg og rúmgóð fimm herbergja íbúð í miðbæ Ísafjarðar - Sérinngangur - íbúðin er á tveimur hæðum, á 1. hæð er inngangur og forstofa, baðherbergi, þrjú herbergi, stofa og borðstofa og eldhús. Í kjallara er stór setustofa, stór geymsla og þvottahús. Sér bílastæði.
Húsið er byggt árið 1906 en 2009-2012 var húsið endurnýjað að stóru leyti og voru þá innréttaðar fjórar nýjar íbúðir í húsinu.


Nánari lýsing:
Efri hæð:
Aðalinngangur að aftanverðu, þar er sér bílastæði og verönd/svalir.
Flísalögð forstofa, hiti í gólfi, fataskápur.
Gangur með parketi.
Baðherbergi með flísum á gólfi, upphengt salerni, handklæðaofn, stór sturtuklefi með nuddstútum og gufu, skápur og innrétting.
Svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Annað svefnherbergi einnig með parketi, án fataskáps.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og stórum fataskáp.
Stór og björt opin stofa og borðstofa með parketi á gólfi.
Opið eldhús með innréttingu frá TH, helluborð og veggofn, uppþvottavél.

Neðri hæð:
Tréstigi á niður á kjallarhæð.
Stór setustofa, hægt að útbúa annað herbergi þar, parket á gólfi.
Stór geymsla með hillum, sérútgangur þar.
Þvottahús með flísum á gólfi.

Í sameign í kjallara er sameiginlegur gangur/geymsla og kyndiklefi.
 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.