Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is- kynnir til sölu - Móholt 10 Ísafirði – Fallegt og töluvert endurnýjað steinsteypt einbýlishús í Holtahverfinu, húsið er á einni hæð og með tvöföldum 60m² bílskúr!
Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, stofa og borðstofa, eldhús, baðherbergi, þvottahús og forstofa. Stór garður með sólpalli. Í bílskúr er aukaherbergi og gott geymslurými.
Hitalagnir eru í öllum gólfum hússins.Nánari lýsing:Forstofa með flísum á gólfi, lítið salerni inn af forstofu.
Rúmgóð, björt og opin
stofa og borðstofa með harðparketi á gólfi, arinn með viðarkamínu, útgengt á góðan sólpall.
Eldhús með ágætri innréttingu, helluborð með gasi og rafmagnshellu, ofn, tengi fyrir uppþvottavél, pláss fyrir tvöfaldan ísskáp eða ísskáp og frystiskáp, harðparket á gólfi. Mjög rúmgott eldhús með góðu skápaplássi.
Þvottahús inn af eldhúsi, flísar á gólfi og sér útgangur þar.
Svefnálmugangur með harðparketi, skápur á gangi.
Baðherbergi með flísum á gófli og veggjum, baðkar og sturtuklefi, innrétting, hiti í gólfi.
Hjónaherbergi með harðparketi á gólfi, stór fataskápur.
Þrjú önnur herbergi með harðparketi á gólfum, fataskápur einu herbergjanna.
Bílskúr er skráður 60,6 m² að stærð, afstúkað herbergi/geymsla, steypt málað gólf, tvær bílskúrshurðir, rafstýrður opnari á annarri hurðinni.
Ágætur garður - stórt hellulagt
bílastæði með stæði fyrir um fjóra til sex bíla.
Framkvæmdasaga seljanda. Hitalagnir voru settar í öll gólf, (nema baðherbergi og bílskúr) árið 2011.
Gólfefni í stofu, eldhúsi og forstofu endurnýjuð 2021.
Sólpallur byggður 2006. Bílastæði hellulagt 2014.
Gler hefur verið endurnýjað að hluta til.
Þakjárn var endurnýjað af fyrri eiganda í kringum 2000, þak á bílskúr var þá hækkað og endurnýjað.
Eldhús var endurnýjað af fyrri eigenda um 2004.
Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.