Stórholt með bílskúr 11 , 400 Ísafjörður
45.000.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
105 m2
45.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1977
Brunabótamat
46.290.000
Fasteignamat
27.850.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is  - kynnir til sölu - Stórholt 11 Ísafirði - Mikið uppgerð þriggja herbergja 83,4 m² íbúð á 2.hæð í fjölbýli ásamt 21,6 m² bílskúr. 
Í íbúðinni er forstofugangur, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og rúmgóð stofa og borðstofa, ágætar suðursvalir út af stofu, gott útsýni yfir fjörðinn! Sérgeymsla á jarðhæð.
Eldhús endurnýjað 2022, skipt var um innréttingu og gólfefni þar og innrétting á baði endurnýjuð, nýtt harðparket á svefnherbergi 2022.
Sama ár voru útveggir hússins einangraðir og klæddir með álklæðningu, allir gluggar endurnýjaðir og skipt um svalahurðir og útihurð, þakkantur var einnig endurnýjaður.


Komið inn í forstofugang með harðparketi á gólfi, gott fatahengi.
Rúmgóð stofa og borðstofa, útgengt á svalir, harðparket á gólfi.
Eldhús, nýleg hvít innrétting, helluborð og ofn, nýlegt harðparket á gólfi.
Minna svefherbergi með nýlegu harðparketi á gólfi.
Stærra svefnherbergi með stórum fataskáp, nýlegt harðparket á gólfi.
Baðherbergi með nýlegri hvítri innréttingu, skápur, baðkar með sturtu, flísar á gólfi. Tengi fyrir þvottavél.

Bílskúr er skráður 21,6 m² að stærð, gott geymslu/vinnupláss, steypt gólf.

Sér geymsla á jarðhæð er skráð 4,4m² og íbúð skráð 79 m².
Sameiginlegt þvotta og þurrkherbergi á jarðhæð. 
 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.