Eyrargata 6, 400 Ísafjörður
46.500.000 Kr.
Fjölbýli
4 herb.
109 m2
46.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1965
Brunabótamat
46.500.000
Fasteignamat
34.550.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is - Til sölu - Eyrargata 6 Ísafirði - Vel staðsett fjögurra herbergja íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi, frábært útsýni yfir bæinn úr stofu. Í íbúðinni eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, forstofugangur, stór stofa með suðursvölum, eldhús, þvottahús, geymsla og baðherbergi. 

Nánari lýsing:
Snyrtilegur stigagangur og sameign.
Komið inn í íbúð, forstofugangur með parketi og stór fataskápur í gangi.
Rúmgott eldhús með hvítri innréttingu, eldavél, helluborð, tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfi.
Þvottaherbergi inn af eldhúsi, flísar á gólfi, góð innrétting og vaskur, geymsla með hillum inn af þvottaherbergi.
Stór stofa og borðstofa með parketi á gólfi, útgengt á góðar suðursvalir úr stofu.
Þrjú stór svefnherbergi, fataskápar í tveimur þeirra
Hjónaherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Annað stórt svefnherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Þriðja svefnherbergið með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi með "walk-in", sturtu, flísar á gólfi og veggjum, innrétting og skápur, upphengt salerni.

Á jarðhæð er lítil sérgeymsla með hillum.
Sameiginleg skógeymsla, hjólageymsla og dekkjageymsla í kyndiklefa.


 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.