Stórholt 11, 400 Ísafjörður
36.000.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
70 m2
36.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1977
Brunabótamat
33.350.000
Fasteignamat
21.900.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is - kynnir til sölu - Stórholt 11 Ísafirði - Falleg og mikið endurnýjuð þriggja herbergja íbúð á 2.hæð fyrir miðju í uppgerðu fjölbýlishúsi.
Árið 2022 voru veggir hússins einangraðir og klæddir með álklæðningu, allir gluggar endurnýjaðir og skipt um svalahurðir, útihurð og þakkantur einnig endurnýjaður. Eldhúsinnrétting, innihurðir og parket frá 2020.
Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi,  baðherbergi, eldhús og rúmgóð stofa með svölum, á jarðhæð er sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús og hjóla/vagnageymsla. 


Sameiginlegur inngangur og stigagangur.
Komið inn í íbúð, þar er forstofugangur með harðparketi, hornskápur og fatahengi.
Eldhús með nýlegri hvítri innréttingu, spanhelluborð og ofn, tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfi.
Rúmgóð stofa og borðstofa með harðparketi á gólfi, útgengt út á suðursvalir.
Baðherbergi, nýlegur vaskaskápur og upphengt salerni, baðkar með sturtu, flísar á gólfi.
Svefnherbergi með harðparketi á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott, harðparket á gólfi, gott fataherbergi inn af hjónaherbergi.
Nýlegt parket, eldhús og innihurðir. Nýjar flísar og upphengt salerni á baði 2022.

Sérgeymsla á jarðhæð með hillum er skráð 4,2 m².
Sameiginlegt þvotta og þurrkherbergi.
 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.