Fjarðarstræti 35, 400 Ísafjörður
39.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
4 herb.
69 m2
39.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1876
Brunabótamat
28.700.000
Fasteignamat
25.800.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is- kynnir til sölu - Fjarðarstræti 35 Ísafirði - Einstaklega fallegt og vel staðsett lítið timburhús á tveimur hæðum.
Í húsinu eru 2-3 svefnherbergi, stofa, eldhús, baðherbergi og kjallari, afgirt lóð út frá stofu.
Húsið var einangrað og klætt að utan með bárujárni árið 2022, einnig var þá skipt um alla glugga og útihurð. 

Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi. 
Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi. 
Opið eldhús með hvítri innréttingu, eldavél, parket á gólfi, hleri niður í kjallara.
Baðherbergi með flísum á gólfi, baðkar með sturtu, tengi fyrir þvottavél. 
Rúmgóð stofa með parketi á gólfi.

Stigi úr eldhúsi upp á rishæð þar sem er opið rými með fataskáp, mögulegt að bæta við herbergi þar, ágætt útsýni út á djúpið.
Ágætt svefnherbergi með parketi á gólfi

Kjallari nýtist sem geymsla, hleri úr eldhúsi og stigi í kjallara sem er undir helmingi stofu. 
Afgirtur garður, steyptur grunnur þar undir mögulegt sólhýsi.
Jarðhæð er skráð 55,2 m² og rishæð 14,4 m² að stærð. 
Húsið stendur á 107 m² eignarlóð. 


Framkvæmdasaga seljanda:
2022 - húsið einangrað og klætt, ný útihurð, nýir gluggar. 
Þakjárn endurnýjað um 2000. 
Ný heimtaug og inntak fyrir kalt vatn sumarið 2024.


 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.