Grundarstræti 17, 420 Súðavík
32.544.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
90 m2
32.544.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2020
Brunabótamat
45.850.000
Fasteignamat
22.050.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is- kynnir til sölu - Grundastræti 17 Súðavík - Nýlegt þriggja herbergja 90,4 m² enda-raðhús á einni hæð í fimm íbúða raðhúsalengju við Grundarstræti 9-17. Ath. þessi eign fellur undir hlutdeildarlán! 
Kaup á íbúð með hlutdeildarláni - útborgun aðeins 5%  -  miðað við að kaupandi falli undir viðmið hlutdeildarlána, sjá nánar á hlutdeildarlan.is

Útborgun 5% - Hlutdeildarlán 20% - Bankalán 75%.

Ath. eignin er laus til afhendingar við kaupsamning!

Húsið er með þremur svefnherbergjum, baðherbergi, geymslu, eldhúsi og stofu. 


Nánari lýsing: 
komið inn í forstofugang með flísum á gólfi og hita í gólfi, ágætur fataskápur. 
Svefnherbergi 1, inn af forstofugangi, með harðparketi á gólfi og fataskáp. 
Svefnherbergi 2, inn af forstofugangi, með harðparketi á gólfi og fataskáp. 
Svefnherbergi 3, inn af stofu, með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturtuklefi, ágæt innrétting, vegghengt salerni og tengi fyrir þvottavél.
Stofa og eldhús í opnu og björtu rými. 
L-laga grá eldhúsinnrétting frá Arens, innbyggð tæki frá Bosch, ísskápur með frysti, uppþvottavél, helluborð og ofn. Gott skápapláss.
Stofa með stórum gluggum, ágætt útsýni út á fjörðinn og út á djúp. Harðparket á gólfu.
Svalahurð út á sólpall úr stofu.
Geymsluherbergi með flísum á gólfi, vatnshitakútur þar.

Timburverönd er fyrir utan stofu. Bílastæði eru hellulögð, og lóðin tyrfð.
Upphitun er með rafmagnsofnum. Gólfhiti er í anddyri og á baði.

Seljandi hefur ekki búið í eigninni og þekki því ekki til ástands hennar að öðru leiti en fram kemur í söluyfirliti og sem tilboðsgjafi staðfestir að hann hafi kynnt sér með undirritun. Seljandi getur ekki veitt frekari upplýsingar um ástand eignarinnar en hægt er að kynna sér við almenna skoðun og skv. söluyfirliti. Eignin selst í því ástandi sem hún er í og mun seljandi ekki gera neinar endurbætur á henni fyrir sölu né frekari þrif. Kaupendum er því bent á að skoða eignina með það í huga. Seljandi mælir sérstaklega með því að eignin sé skoðuð með fagmönnum fyrir tilboðsgerð.

 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.