Fjarðarstræti 4, 400 Ísafjörður
37.000.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
98 m2
37.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1973
Brunabótamat
43.950.000
Fasteignamat
32.200.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is- kynnir til sölu - Fjarðarstræti 4 Ísafirði, íbúð 4.h.h. - Rúmgóð þriggja herbergja íbúð á 4. hæð í fjölbýli. Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, eldhús, góð stofa og borðstofa, baðherbergi og búrgeymsla, sérgeymsla í kjallara og góð sameign.

Nánari lýsing:
Komið inn í hol með parketi og fatahengi
Eldhús með upprunalegri innréttingu, ca 20-25 ára,  eldavél og vifta, parket á gólfi.
Rúmgóð stofa með parketi á gólfi, útgengt út á stórar suðursvalir, frábært útsýni yfir bæinn.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum,  baðkar með sturtu, tengi fyrir þvottavél. 
Svefnherbergi 1 - Hjónaherbergi með parketi á gólfi, stór fataskápur.
Svefnherbergi 2 - barnaherbergi, nýlegt parket á gólfi, fataskápur.
Geymslukompa með góðu hilluplássi.

Stór sérgeymsla í kjallara með hillum.
Sameiginlegt þvotta og þurrkherbergi í kjallara en þvottavélatengi í íbúð.
Hjóla og vagnageymsla. Öll sameign er mjög snyrtileg.
Íbúðin er skráð 87,7 m² og geymsla í kjallara er skráð 10,4 m².

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.