Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is - kynnir til sölu - Sundstræti 36 Ísafirði, íbúð 0304 - Rúmgóð og tiltölulega nýleg þriggja herbergja íbúð á 3.hæð í fjölbýli með lyftu og stórri bílageymslu.
Frábært útsýni yfir sundin og út á djúp - Lyfta er í húsinu - gott sér stæði í bílageymslu.
Í íbúðinni er forstofa, stór stofa og borðstofa með yfirbyggðum svölum, opið eldhús, geymsla, þvottahús/geymsla, baðherbergi og tvö rúmgóð svefnherbergi.
Í sameign er stigagangur, lyfta, sér geymsluskápur, hjóla/dekkjageymsla og bílageymsla á jarðhæð.
Nánari lýsing:Komið inn í íbúð, þar er
forstofugangur með parketi á gólfi, stór fataskápur.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innrétting, upphengt salerni og góður sturtuklefi.
Svefnherbergi með parketi á gólfi, stór fataskápur.
Annað
svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Þvottahús með flísum á gólfi, innrétting fyrir þvottavél og þurrkara, vaskur og ágætt geymslupláss.
Eldhús er opið inn að stofu, innrétting frá Trésmiðjunni, helluborð, ofn og háfur. Inn af eldhúsi er ágæt geymsla með skápum, skúffum og hillum.
Stór stofa og borðstofa með parketi gólfi, útgengt út á
stórar yfirbyggðar svalir með frábæru útsýni.
Hitalagnir í gólfum, nýlega (2024) var sett upp ný stjórnstöð og fjarstýringar fyrir gólfhitastillingu.
Sameiginleg
bílageymsla og sér bílastæði. Nýlega var sett upp rafmagnstenging (tengiplata) við hvert bílastæði þannig að eigendur hafi möguleika á að setja upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl.
Sameiginleg
hjóla og dekkja geymsla og kyndiklefi.
Á jarðhæð eru herbergi með
geymsluskápum, þar tilheyrir einn skápur íbúðinni.
Sundstræti 36 var standsett sem íbúðarhúsnæði um 2006 og voru þá innréttaðar 12 íbúðir í húsinu.
Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.