Stórholt 17, 400 Ísafjörður
29.000.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
89 m2
29.000.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1981
Brunabótamat
48.050.000
Fasteignamat
26.700.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is- kynnir til sölu - Stórholt 17  fyrsta hæð til hægri íbúð merkt 0104 -  rúmgóð þriggja herbergja íbúð á 1.hæð í fjölbýlishúsi ásamt sérgeymslu í kjallara.
Íbúðin er skráð 83,2 m2² og geymsla 5,9 m² samtals 89,1 m² birt stærð.


Komið inn í íbúð, þar er fataskápur, dúkur á gólfi. Gangur með plastparketi.
Eldhús með ágætu útsýni yfir fjörðinn, dúkur á gólfi, eldhúsinnrétting upprunaleg.
Baðherbergi með baðkari, dúkur á gólfi og veggjum, tengi fyrir þvottavél á baði.
Tvö svefnherbergi, hjónaherbergi með stórum upprunalegum fataskáp, plastparket á gólfi.
Barnaherbergi með fataskáp, plastparket á gólfi.
Afstúkað lítið herbergi/kompa við enda gangs, engin hurð þar.
Rúmgóð stofa og borðstofa með plastparketi, útgengt á svalir með góðu útsýni.

Sér geymsla í kjallara er skráð sem eignarhluti 0006.
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla og þvotta/þurrkherbergi í kjallara.

Athygli er vakin á því að seljandi hefur ekki búið í eigninni og þekkir því ekki ástand hennar að öðru leyti en fram kemur í lýsingu og söluyfirliti. Seljandi getur ekki veitt frekari upplýsingar um ástand hennar en hægt er að kynna sér við almenna skoðun. Eignin selst í því ástandi sem hún er í og mun seljandi ekki gera neinar endurbætur né þrif á henni fyrir sölu.  Væntanlegum kaupendum er því bent á að skoða eignina með það í huga.

 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.