Hjallavegur 19, 400 Ísafjörður
59.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
7 herb.
242 m2
59.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1976
Brunabótamat
91.400.000
Fasteignamat
72.000.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is -  kynnir til sölu - Hjallavegur 19 Ísafirði - Mjög rúmgott og vel staðsett tveggja hæða einbýlishús.Neðri hæð er steinsteypt og efri hæð byggð úr timbri. Á efri hæð er forstofa, gangur, stofa og borðstofa, eldhús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi. Á neðri hæð er sérinngangur, gangur, baðherbergi, stofa/herbergi, herbergi, geymsla, þvottahús, kyndiklefi og 36 m² bílskúr. 
Möguleiki á að útbúa séríbúð í neðri hæðinni. Bílastæði fyrir um 3-4 bíla hellulagt og malbikað.


Nánari lýsing:
Efri hæð:

Steyptar tröppur og svalir fyrir framan hús. 
Forstofa með flísum á gólfi og ágætum fataskáp.
Rúmgóð stofa og borðstofa með frábæru útsýni út yfir fjörðinn, teppi á gólfi, útgengt út á sólpall bakatil. 
Eldhús með upprunalegri innréttingu og korkflísum á gólfi, góður borðkrókur.
Svefnálmugangur með teppi á gólfi. 
Hjónaherbergi með parketi og stórum fataskáp. 
Annað svefnherbergi með parketi á gólfi. 
Tvöfalt herbergi, búið að opna á milli tveggja svefnherbergja en auðvelt að loka aftur og búa til tvö herbergi. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkar með sturtu, skápur og innrétting. 

Neðri hæð:
Sérinngangur á neðri hæð, komið inn í gang.
Kyndiklefi/geymsla
Baðherbergi með sturtu.
Stór stofa/herbergi án gólfefna, 
Stigagangur með teppi, fataskápur. 
Þvottaherbergi.
Geymsla með hillum.
Herbergi við enda gangs var áður nýtt sem eldhús. 

Bílskúr 36 m² með steyptu gólfi og hillum, upprunaleg bílskúrshurð úr timbri.
Efri hæð er skráð 121,7 m² og neðri hæð skráð 120,3 m² , samtals 242 m²


 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.