Engjavegur 17, 400 Ísafjörður
36.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Tvíbýli
3 herb.
61 m2
36.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1963
Brunabótamat
34.100.000
Fasteignamat
26.100.000

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - [email protected] - www.fsv.is - Kynnir til sölu - Engjavegur 17 Ísafirði -  Mikið endurnýjuð og falleg þriggja herbergja séríbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi auk sameignar - Íbúðin endurnýjuð 2023-2024 - Nýtt þakjárn sett á húsið 2024. 
Séríbúð á neðri hæð, sérinngangur, gangur, stofa, baðherbergi, eldhús og tvö góð svefnherbergi.
Í sameign er gangur, þvottahús, kyndiklefi og geymsla auk geymsluskúrs í garði.

Nánari lýsing:

Sérinngangur að sunnanverðu en einnig er innangengt frá sameign.
Forstofa, gangur með nýju harðparketi á gólfi. 
Stofa er rúmgóð, nýtt harðparket með nýju harðparketi á gólfi. 
Eldhúsið er opið að stofu, ný innrétting, helluborð og ofn. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Baðherbergi endurnýjað, flísar á gólfi og veggjum, mjög góð "walk-in" sturta.
Stórt svefnherbergi með fataskáp, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi með nýju harðparketi á gólfi.

Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús, sameiginleg geymsla, kyndiklefi og gangur með efri hæð, útgangur úr gangi norðan megin. Sameign er um 27 m² að stærð.
Sameiginlegur geymsluskúr í garði,steyptur grunnur undir skúrnum og tengdur rafmagni.
Stór garður fyrir neðan hús.

Íbúðin mikið endurnýjuð 2023-24.
Íbúðin endurnýjuð 2023-24. Ný gólfefni, innihurðir, baðherbergi endurnýjað, eldhús fært til og endurnýjað.
Vatnsinntak endurnýjað og vatnslagnir að baði og eldhúsi endurnýjaðar.
Þakjárn endurnýjað 2024.

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur [email protected]

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.